|
Velkomin/nn á vef stjórnar listamannalauna.
Hlutverk launasjóðs hönnuða, launasjóðs myndlistarmanna, launasjóðs rithöfunda, launasjóðs sviðslistafólks, launasjóðs tónlistarflytjenda og launasjóðs tónskálda er að veita listamönnum starfslaun og styrki samkvæmt lögum um listamannalaun. Sérstakar nefndir annast úthlutun starfslauna úr sjóðunum og eru þær skipaðar samkvæmt tillögum fagfélaga ofangreindra sjóða.
Ákvarðanir um veitingu framlaga úr sjóðum þessum skulu gegna þeim tilgangi að efla listsköpun í landinu.
Menntamálaráðherra skipar þrjá menn í stjórn listamannalauna til þriggja ára í senn, einn samkvæmt tilnefningu Bandalags íslenskra listamanna, einn samkvæmt tilnefningu Listaháskóla Íslands og einn án tilnefningar. Stjórn listamannalauna 2012-2015 skipa þau:
Birna Þórðardóttir, formaður
Margrét Bóasdóttir, varaformaður, tilnefnd af Bandalagi íslenskra listamanna
Kristján Steingrímur Jónsson tilnefndur af Listaháskóla Íslands |
Auglýsingar:
- Umsóknarfrestur um starfslaun listamanna fyrir árið 2013 rennur út miðvikudaginn 26. september kl. 17:00. Rafræn umsóknareyðublöð verða aðgengileg frá og með 20. ágúst 2012.
- Auglýsing um starfslaun listamanna 2013